Psalms 85

1Til söngstjórans. Kóraíta-sálmur. 2Þú hefir haft þóknun á landi þínu, Drottinn, snúið við hag Jakobs, 3þú hefir fyrirgefið misgjörð lýðs þíns, hulið allar syndir þeirra. [Sela] 4Þú hefir dregið að þér alla bræði þína, látið af heiftarreiði þinni. 5Snú þér til vor aftur, þú Guð hjálpræðis vors, og lát af gremju þinni í gegn oss. 6Ætlar þú að vera oss reiður um eilífð, láta reiði þína haldast við frá kyni til kyns? 7Vilt þú eigi láta oss lifna við aftur, svo að lýður þinn megi gleðjast yfir þér? 8Lát oss, Drottinn, sjá miskunn þína og veit oss hjálpræði þitt! 9Ég vil hlýða á það sem Guð Drottinn talar. Hann talar frið til lýðs síns og til dýrkenda sinna og til þeirra, er snúa hjarta sínu til hans. 10Já, hjálp hans er nálæg þeim er óttast hann, og vegsemdir munu búa í landi voru. 11Elska og trúfesti mætast, réttlæti og friður kyssast. 12Trúfesti sprettur upp úr jörðunni, og réttlæti lítur niður af himni. 13Þá gefur og Drottinn gæði, og land vort veitir afurðir sínar. [ (Psalms 85:14) Réttlæti fer fyrir honum, og friður fylgir skrefum hans. ]
Copyright information for Icelandic